Sigursteinn og Snorri í Frægðarhöll
Taekwondo
Skrifað af Administrator
Sunnudagur, 12 Apríl 2009 22:16
Frægðarhöll taekwondo íþróttarinnar
(THE OFFICIAL TAEKWONDO HALL OF FAME®) eru alþjóðleg
samtök sem hafa það markmið að leita uppi einstaklinga
eða hópa sem hafa unnið frábært starf í
þágu taekwondo
og veita þeim viðurkenningu. Viðurkenningarnar eru gjarnan
veittar til frumkvöðla sem eru stofnendur fyrstu
félaganna í einstökum löndum eða fyrir annað
þróunarstarf.
Feðgarnir Snorri Hjaltason og Sigursteinn Snorrason fá
viðurkenningu frá samtökunum á föstudaginn langa
og
verða þá teknir inní frægðarhöll taekwondo
íþróttarinnar. Þeir eru fyrstu
Norðurlandabúarnir og einir af fáum
Evrópubúum sem hafa hlotið þessa miklu
viðurkenningu fyrir störf sín.
Viðurkenningarnar verða afhentar á árlegri
hátíð samtakanna í New Jersey í
Bandaríkjunum. Á athöfninni
verður margt af fremsta taekvondo fólki heims viðstatt m.a.
verðlaunahafar á Ólympíuleikum og
Heimsmeistaramótum.
Þeir Snorri og Sigursteinn eru vel að viðurkenningunum
komnir enda hafa þeir unnið mikið og gott starf fyrir
taekwondo íþróttina á Íslandi: Snorri var
formaður Ungmennafélagsins Fjölnis árin 1993-1998.
Á þeim árum
var taekwondodeild Fjölnis stofnuð. Snorri hefur stutt nær
allar taekwondodeildir landsins bæði fjárhagslega
og með pólitískum stuðningi. Þá var hann
einn aðal hvatamaðurinn að stofnun Taekwondosambandsins. Menn
höfðu reynt að stofna sérsamband fyrir taekwondo í
yfir tíu ár en ekki tekist, Snorri náði því
hinsvegar í gegn
á nokkrum mánuðum. Snorri er í dag
heiðursformaður Fjölnis og Taekwondosambands Íslands.
Sigursteinn stofnaði Taekwondodeild Fjölnis árið
1994 og hefur stofnað sex aðrar deildir eftir það, nú
síðast
Taekwondodeild KR árið 2006. Hann kemur að þjálfun
leikmanna og þjálfara hjá átta félögum
á Íslandi auk
þess að vera landsliðsþjálfari. Á
síðasta Norðurlandamóti náði
landsliðið undir hans stjórn 16 verðlaunum og
þar af 4 gullum sem er besti árangur Íslendinga hingað
til. Þá hefur Sigursteinn síðastliðin fjögur
ár staðið fyrir
taekwondo æfingum á heimili fyrir munaðarlaus börn
í Mexíkó ásamt Jóni Levy Guðmundssyni.
Þar stunda
nú 150 manns taekwondo og er í undirbúningi annað
slíkt verkefni í Brasilíu.
Öflug þróun og hröð útbreiðsla
taekwondo íþróttarinnar á Íslandi hefur
vakið athygli erlendis. Íslenskt
taekwondofólk hefur staðið vel að sínum málum
og hafa feðgarnir Snorri og Sigursteinn farið þar fremstir
í
flokki . Snorri og Sigursteinn hafa áður verið
heiðraðir á alþjóðlegri grundu fyrir
góð störf í þágu
taekwondoíþróttarinnar. Snorri er með 4.dan
Heiðursmeistaragráðu frá Kóreu og Sigursteinn
hefur fengið
verðlaun frá Taekwondo Promotion Foundation í Kóreu
og framistöðuviðurkenningu frá Kukkiwon,
höfuðstöðvum Taekwondo í Kóreu.
Nánar um hátíðina má finna hér:
http://www.taekwondohalloffame.com
|